Shipping policy

Við kappkostum að afgreiða allar pantanir samdægurs eða næsta virka dag til að tryggja að varan skili sér sem fyrst til þín.

1. Sendingarmátar og verð

Við bjóðum upp á eftirfarandi afhendingarleiðir:

  • Sækja í verslun (Frítt): Þú getur sótt pöntunina þína í verslun okkar á Laugavegi 44, 101 Reykjavík, innan opnunartíma. Þú færð tölvupóst um leið og pöntunin er tilbúin.
  • Dropp afhendingarstaðir: Pöntunin er send á valinn Dropp afhendingarstað. Sendingarkostnaður birtist í greiðsluferlinu.
  • Dropp heimsending: Hægt er að fá vöruna senda heim að dyrum með Dropp gegn gjaldi sem bætist við í greiðsluferlinu.
  • Pósturinn – alþjóðleg sending: Við sendum pantanir til útlanda með Póstinum. Sendingarkostnaður og afhendingartími fer eftir áfangastað og er reiknaður í greiðsluferlinu.

2. Afhendingartími

  • Höfuðborgarsvæðið: Pantanir eru yfirleitt afhentar innan 1 til 2 virkra daga.
  • Landsbyggðin: Pantanir eru yfirleitt afhentar innan 2 til 4 virkra daga.
  • Alþjóðlegar sendingar: Afhendingartími fer eftir áfangastað og getur tekið frá nokkrum virkum dögum upp í nokkrar vikur.
  • Á álagstímum getur afhendingartími lengst lítillega.

3. Rekjanleiki sendinga

  • Þegar pöntunin þín er send færðu staðfestingu í tölvupósti ásamt rekjanúmeri. Hægt er að fylgjast með sendingu í gegnum Dropp eða Póstinn eftir því hvaða sendingarleið var valin.

4. Ábyrgð á sendingum

  • Somerset ber ábyrgð á vörunni þar til hún hefur verið afhent og móttekin af Dropp.
  • Ábyrgð á sendingu flyst frá Somerset til Dropp um leið og Dropp staðfestir móttöku vörunnar í kerfi sínu eða á afhendingarstað.
  • Eftir að Dropp hefur tekið við vörunni ber Dropp ábyrgð á tjóni, töfum, týndum sendingum, röngum afhendingum og öðrum mistökum sem kunna að eiga sér stað í flutnings- eða dreifingarferli.
  • Ef vandamál koma upp eftir að Dropp hefur tekið við sendingunni skal viðskiptavinur hafa beint samband við Dropp í samræmi við skilmála þeirra.

5. Röng heimilisföng og ósóttar sendingar

  • Vinsamlegast tryggið að nafn, símanúmer og heimilisfang séu rétt skráð við pöntun. Ef sending er endursend til okkar vegna rangra upplýsinga eða vegna þess að hún var ekki sótt innan tilskilins tíma, áskiljum við okkur rétt til að rukka sendingargjald fyrir endursendingu.

Need Help?

If you have any questions or issues, email us at support@somerset.is or message us on Instagram at @bysomerset. We will assist you.

Additional Information

  • Endurgreiðslur eru einungis mögulegar innan 14 daga frá kaupdegi og aðeins eftir að vara hefur borist til okkar og verið yfirfarin.
  • Ef sending er endursend vegna rangs heimilisfangs eða þess að hún var ekki sótt, getur aukakostnaður bæst við.
  • Alþjóðlegar pantanir kunna að bera með sér tolla, gjöld eða skatta sem eru ákveðnir af viðkomandi yfirvöldum. Slíkur kostnaður er ekki greiddur af Somerset.